Taka kerrusótthreinsitæki í gagnið

Bónus hefur tekið í gagnið nýtt kerrusótthreinsitæki í Smáratorgi, Skeifunni og á Korputorgi og verður sett upp í næstu viku í Kauptúni í Reykjavík. 

Tækinu er ætlað að auðvelda sótthreinsun á innkaupakerrum. 

„Um er að ræða sótthreinsitæki fyrir innkaupakerrur og handkörfur sem er mikilvæg viðbót við sóttvarnir sem eru þegar fyrir í Bónus og minnkar smithættu,“ segir í tilkynningu frá Bónus.

Kerran keyrð inn í tækið

„Sóttvarnir hafa verið stór hluti af okkar starfsemi síðasta árið enda öryggi okkar viðskiptavina og starfsmanna ávallt í fyrirrúmi. Það er þó nokkuð síðan við pöntuðum þessi tæki en vegna eftirspurnar bárust þau ekki fyrr en núna,“ er haft eftir Guðmundi Marteinssyni, framkvæmdastjóra Bónus í tilkynningu. 

Þar segir einnig að tækið sé einfalt í notkun. 

Innkaupakerra er keyrð inn í tækið og beðið er á meðan útfjólubláir geislar sótthreinsa. Mikilvægt er að sótthreinsa hendur á meðan beðið er eftir kerrunni. Starfsmenn okkar munu leiðbeina viðskiptavinum við notkunina. Við hvetjum viðskiptavini samt sem áður að huga að almennum sóttvörnum við komu og brottför úr verslunum Bónus enda er þetta einungis viðbót við núverandi sóttvarnaraðgerðir,“ segir Guðmundur Marteinsson í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK