Vogar hafna að veita leyfi fyrir Suðurnesjalínu 2

Vogar á Vatnsleysuströnd.
Vogar á Vatnsleysuströnd. mbl.is/Árni Sæberg

Bæjarstjórn sveitarfélagsins Voga hafnaði í gær að veita framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2.

Frá þessu greinir Landsnet í tilkynningu og bendir á að áður hafa Reykjanesbær, Hafnarfjörður og Grindavík samþykkt umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi með atkvæðum allra bæjarfulltrúa sveitarfélagana þriggja.

Talar um vonbrigði fyrir hin sveitarfélögin

Í tilkynningunni er afgreiðsla sveitarfélagsins sögð vonbrigði, meðal annars í ljósi umræðu um náttúruvá og afhendingaröryggi raforku á svæðinu.

Haft er eftir Guðmundi Inga Ásmundssyni forstjóra Landsnets að staðan sem félagið standi frammi fyrir sé mjög erfið. Landsnet hafi í mörg ár talað fyrir mikilvægi þess að bæta afhendingaröryggi raforku á Suðurnesjum.

„Þessi niðurstaða Sveitarfélagsins Voga er vonbrigði, ekki bara fyrir okkur heldur einnig fyrir hin sveitarfélögin á línuleiðinni sem nú þegar hafa veitt leyfi. Ef ákvörðunin stendur óbreytt er í uppnámi ein mikilvægasta framkvæmdin í flutningskerfi raforku á svæði sem stjórnvöld hafa sett í forgang,“ segir Guðmundur.

Afgreiðslan eigi sér ekki fordæmi

„Afgreiðsla framkvæmdaleyfis með höfnun eins og í þessu tilviki á sér ekki fordæmi og ekki ljóst hver séu næstu skref en vinna við að meta það er nú þegar hafin. Verkefnið er stopp á meðan og Suðurnesin búa áfram við óbreytt ástand. Í ljósi þess að jarðhræringar og eldgos gætu staðið yfir í lengri tíma er það ekki ásættanlegt fyrir íbúa og fyrirtæki á svæðinu sem er miður.“

Segir enn fremur í tilkynningunni að Suðurnesjalína 2 hafi lengi verið í undirbúningi og verið stefnt að því að hefja framkvæmdir árið 2020.

„Umsóknin um framkvæmdaleyfið byggði á samþykktri kerfisáætlun og ítarlegum undirbúningi þar sem lagt var mat á umhverfisáhrif ólíkra valkosta og hagsmunaaðilum tryggð aðkoma í gegnum vandað samráðsferli,“ segir þar.

Jarðstrengskostur feli í sér viðbótarkostnað

„Loftlínuvalkosturinn sem sótt var um framkvæmdaleyfi fyrir tryggir best afhendingaröryggi raforku, af þeim kostum sem voru skoðaðir.  Rannsóknir við undirbúning verkefnisins sýndu jafnframt að svæðið er útsett fyrir jarðskjálftum og eldgosum, sem gerir það að verkum að jarðstrengskostur er ekki góður á þessu landsvæði.

Sá jarðstrengsvalkostur  sem Sveitarfélagið Vogar leggur til felur í sér umtalsverðan viðbótarkostnað og minna öryggi. Þessi valkostur fellur heldur ekki að stefnu stjórnvalda um lagningu raflína í flutningskerfinu og  er ekki samræmi við raforkulög. Þar af leiðandi getur Landsnet ekki lagt hann til.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK