Margrét tók fyrstu skóflustunguna fyrir Ölgerðina

Guðni Þór Sigurjónsson, forstöðumaður vöruþróunar og gæðadeildar, Steinþór Jónasson umsjónarmaður …
Guðni Þór Sigurjónsson, forstöðumaður vöruþróunar og gæðadeildar, Steinþór Jónasson umsjónarmaður fasteigna, Margrét Arnardóttir framkvæmdastjóri tæknisviðs, Jón Sindri Tryggvason yfirvélstjóri, Guðmundur Rúnar Benediktsson rekstrarstjóri framleiðslu Ljósmynd/Ölgerðin

Skóflustunga að nýju 1.700 fm framleiðsluhúsnæði Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. hefur verið tekin, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að um sé að ræða fjárfestingu vel á annan milljarð króna og að fjárfestingin sé sjáanlegt merki þess að fyrirtækið hyggst halda framleiðslu áfram á Íslandi.

Fram kemur í tilkynningunni að nýja framleiðsluhúsnæðið verður plastlaust, ekkert plast verður notað í ytri pakkningar og með því sparar Ölgerðin fleiri tonn af plasti á hverju ári.

Byggt verður úr íslensku límtré og er með því stutt við íslenskan iðnað á því sviði. Húsið mun tengjast núverandi húsnæði og sérkenni þess, stórar gosdrykkjadósir, verða á nýju byggingunni.  Reiknað er með að hundruð starfsmanna muni á næstu 12 mánuðum koma að byggingu hússins.

„Vöxtur Ölgerðarinnar hefur verið mikill síðustu ár og afkastageta okkar til framleiðslu var orðin of takmörkuð. Nýtt framleiðsluhúsnæði er lausnin en með því getum við ekki aðeins aukið framleiðslu okkar, heldur jafnframt gefið nýsköpun byr undir báða vængi og sýnt svart á hvítu að við ætlum okkur að vera áfram íslenskt framleiðslufyrirtæki í fremstu röð,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, í tilkynningunni.

 „Við getum í nýja húsnæðinu verið mun sveigjanlegri en áður í pakkningum til að svara eftirspurn neytenda og leitt áfram nýsköpun á þessu sviði,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK