Seðlabankinn segir brösugt ár í ferðamennsku geta leitt til minna vægis ferðaþjónustu í landsframleiðslunni. Þetta kemur fram í nýjustu útgáfu Peningamála Seðlabankans. Slíkur samdráttur kann að neyða marga starfsmenn ferðþjónustunnar til að skipta um starfsvettvang.
Framleiðni ferðaþjónustunnar minnkaði mikið árið 2020 en niðurstöður alþjóðagjaldeyrissjóðsins sýna að slíkur skellur í framleiðni getur dregið úr vægi þeirrar atvinnugreinar í landsframleiðslunni. Því gætu margir þeirra sem misstu starf sitt eftir fall Wow Air og í Covid-kreppunni þurft að skipta um starfsvettvang eftir langt atvinnuleysistímabil.
Starfsmenn ferðaþjónustu eru margir hverjir ósérhæfðir og það gæti veikt stöðu þeirra til aðlögunar á vinnumarkaði. Áætlað er að um sex þúsund ósérhæfðir starfmenn hafi starfað í gistihúsa- og veitingarekstri hér á landi árið 2019, að því er fram kemur í Peningamálum.