Nýir leiðtogar hjá Orku náttúrunnar

Herdís Skúladóttir og Daði Hafþórsson eru nýir leiðtogar hjá Orku …
Herdís Skúladóttir og Daði Hafþórsson eru nýir leiðtogar hjá Orku náttúrunnar. ON/Atli Már

Þau Herdís Skúladóttir og Daði Hafþórsson eru hvort tekin við sínu leiðtogahlutverki innan Orku náttúrunnar. Hún sem fararstjóri stafrænnar forystu og hann sem forstöðumaður virkjanareksturs ON, segir í fréttatilkynningu frá ON.

Hlutverk Herdísar hjá ON er að skilgreina og þróa verklag þannig að stafræn tækni nýtist til framfara í starfseminni allri. Þar er ekki síst hoft til aukinnar og betri þjónustu við viðskiptavini en einnig til stuðnings metnaðarfullri umhverfisstefnu fyrirtækisins.

„Stafræn þróun er svið þar sem flest öll fyrirtæki eru nú að reyna hlaupa sem hraðast og tileinka sér nýja tækni en ekki síður nýja hugmyndafræði og hugsunarhátt. Það er virkilega skemmtilegt að koma inn í nýtt og ómótað starf og fá tækifæri til þess að setja mark sitt á það og þessa vegferð sem ON er á,“ segir Herdís.

Orka náttúrunnar er dótturfyrirtæki Orkuveitunnar.
Orka náttúrunnar er dótturfyrirtæki Orkuveitunnar. Orka náttúrunnar

Í starfi Daða sem forstöðumaður virkjanareksturs ON felst ábyrgð á rekstri virkjananna þriggja sem ON á. Það eru jarðgufuvirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum, sem eru hinar stærstu á landinu og vinna rafmagn og heitt vatn fyrir hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu, og vatnsaflsvirkjunin í Andakílsá.

„Það er ekki á hverjum degi sem manni býðst að vinna hjá fyrirtæki sem ætlar mjög ákveðið og markvisst að leggja sitt af mörkum til að bæta heiminn og hafa sett umhverfismál á oddinn. Þá finnst mér líka spennandi að vinna með sérfræðingum ON, sem margir hverjir eru á heimsmælikvarða,“ segir Daði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK