Bankasýslan og Íslandsbanki sendu frá sér tilkynningu í kvöld að áskriftir hefðu borist fyrir öllum hlutum sem eru í boði í hlutafjárútboði bankans umfram efri mörk útboðsstærðar, þar með talið valréttarhluti, á öllu verðbilinu. Útboðið hófst í morgun, og á að ljúka 15. júní næstkomandi.
Um er að ræða útboð á rúmlega 636 milljónum hlutum af hlutafé ríkissjóðs í Íslandsbanka, en í útboðslýsingu Bankasýslunnar og Íslandsbanka sem birtist fyrr í dag kemur fram að leiðbeinandi verðbil þess sé á bilinu 71-79 krónur á hvern hlut, sem leiðir til að áætlað markaðsvirði Íslandsbanka í kjölfar útboðsins er um 150 milljarðar króna.