Skeljungur keypti nýlega allt hlutafé í Gló veitingum ehf. og tók við rekstri félagsins. Berglind Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Gló.
Berglind hefur undanfarið ár starfað við rekstrar- og markaðsmál hjá Metro og þar áður hjá Dagný og Co. samhliða námi. Hún er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Glóvörur, svo sem skálar, vefjur, safar og grautar, eru nú til sölu á þremur þjónustustöðvum Orkunnar; við Vesturlandsveg, í Suðurfelli og Hagasmára. Haft er eftir Berglindi í tilkynningu að þetta sé fyrsta skrefið í þróun Glóvörumerkisins.