Seðlabankinn lækkaði í vikunni hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda úr 85% niður í 80%. Hámarkshlutfall fyrir fyrstu kaupendur er enn óbreytt eða 90%.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði í Sprengjusandi á Bylgjunni í dag að um væri að ræða fyrirbyggjandi aðgerð til þess að koma í veg fyrir að fasteignabóla myndist og fasteignaverð fari upp úr öllu valdi. Hann bætti við að þótt fasteignaverð hefði hækkað mikið í ár hefði það hækkað án skuldsetningar.
„Við vorum að færa veðsetningu niður í 80% fyrir fastakaupendur, við höfum alveg heimild til þess að færa hana niður í 60% til 70% en ég er ekki að segja að við gerum það. Við höfum líka heimild sem alþingi veitti okkur í júní að takmarka skuldsetningu varðandi ráðstöfunartekjur. Þannig að það takmarkist hvað fólk getur tekið mikið af peningum að láni varðandi ráðstöfunartekjur,“ sagði Ásgeir.
Hann sagði einnig að gríðarlegur skortur væri á húsnæði og veltuhraði fasteigna hefði aldrei verið minni.
„Þá skapast smá æsingur, í fyrsta lagi telur fólk að það þurfi að leggja allt í sölurnar til þess að ná þessum eignum og líka það að það skapast væntingar um að fasteignamarkaðurinn haldi áfram að hækka næstu ár og það sé allt í lagi að gíra sig upp í rjáfur, markaðurinn muni búa til eigið fé fyrir þig,“ sagði Ásgeir og jafnframt:
„Ég vona að íslenska þjóðin hafi lært af sínum mistökum. Það er ekki ráðlegt að gíra sig upp í rjáfur með ekkert eigið fé.“