Fjarðabyggð, Landsvirkjun og Copenhagen Infrastructure Partners (CIP) hafa undirritað viljayfirlýsingu um að meta kosti þess að þróa grænan orkugarð á Reyðarfirði.
Í fyrstu verða kannaðir kostir þess að framleiða rafeldsneyti með vetni á Reyðarfirði en einnig verður farið í að skoða og greina möguleg samlegðaráhrif við aðra starfsemi á svæðinu, að því er segir í tilkynningu. Þar verður m.a. horft til möguleika á orkuskiptum í sjávarútvegi og landflutningum, endurnýtingu varma til húshitunar á Reyðarfirði og notkun súrefnis við landeldi á fiski. Auk þessa verða kannaðir kostir til að afla orku á svæðinu fyrir mögulega starfsemi í græna orkugarðinum.
Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir bæjarfélagið stolt af því að horft sé til Fjarðabyggðar til uppbyggingar á slíkri starfsemi. „Það er verulegur ávinningur fyrir allt samfélagið í að þróa nýjar lausnir í orkumálum og skapa þannig frekari tækifæri fyrir frumkvöðla til nýsköpunar og uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi,“ er hat eftir bæjarstjóranum í tilkynningu.
Landsvirkjun stefnir að kolefnishlutleysi árið 2025. „Baráttan við loftslagsvána kallar á þróun nýrra lausna sem gera orkuskipti möguleg og við viljum taka þátt í því. Vonir eru bundnar við að rafeldsneyti muni gera orkuskipti í skipasiglingum möguleg og við viljum kanna kosti þess að framleiða það hér á landi,“ er haft eftir Ríkarði Ríkarðssyni, framkvæmdastjóra Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun.
Hann segir þátttöku CIP í verkefninu einnig mikilvæga þar sem fyrirtækið kemur inn með mikla alþjóðlega þekkingu og reynslu af fjárfestingum í framleiðslu endurnýjanlegrar orku. CIP var stofnað árið 2012 af reynslumiklum stjórnendum úr danska orkugeiranum í samstarfi við danska lífeyrissjóðinn PensionDanmark. Sjóðir CIP eru með fjárfestingar um allan heim og eiga um 100 alþjóðlegir stofnanafjárfestar aðild að þeim.