Heilbrigðisyfirvöld hafa miklar áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins og þrýstingur er á að stjórnvöld grípi til hertari aðgerða. Þetta staðfestir Óli Björn Kárason, alþingismaður í samtali í Dagmálum. Þar er hann gestur ásamt Önnu Hrefnu Ingimundardóttur, forstöðumanni efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins.
Hún segir oft erfitt að átta sig á raunverulegri stöðu heilbrigðiskerfisins þegar kemur að viðbrögðum við faraldrinum. Aðgerðir til að bregðast við virðist ekki fara saman við þær yfirlýsingar sem gefnar eru.
„Flestir voru mjög skilningsríkir í fyrravor þegar það var algjörlega óvitað hvað hér myndi skella á. En nú er komið eitt og hálft ár og maður hefði haldið að það væri verið að nýta tímann í að bregðast við og búa til svigrúm ef það þyrfti til í heilbrigðiskerfinu. Að vissu leyti er ekki að fara saman hljóð og mynd. Maður hefur séð fréttir um að það hafi verið að fækka gjörgæslurýmum og að ekki sé endilega verið að kalla fólk úr sumarfríum og samt er verið að tala um að staðan sé grafalvarleg. Það eru dálítið skipt skilaboð,“ segir Anna Hrefna.
Anna Hrefna og Óli Björn eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Dagmálum.
Þátturinn er opinn öllum áskrifendum Morgunblaðsins og má nálgast þá á mbl.is.