Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Grósku hafa nú annað árið í röð keyrt viðskiptahraðalinn Startup SuperNova og lýkur honum formlega í dag með fjárfestadegi sem er haldinn í Grósku.
Dagskráin hefst klukkan 13 og verður í beinu streymi:
Elsa Bjarnadóttir hjá Icelandic Startups opnar viðburðinn en síðan mun Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, ávarpa samkomuna. Erlingur Brynjúlfsson, meðstofnandi og CTO hjá Controlant, verður með erindi. Hann hefur leitt tækni- og vöruþróun fyrirtækisins síðustu 10 ár.
Dagskráin:
12:30. Húsið opnað
13:00. Dagskrá hefst – kynnir og opnun frá Icelandic Startups / Elsa Bjarna
13:10. Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra
13:15. Erlingur Brynjúlfsson, meðstofnandi og CTO hjá Controlant
13:30. Kynningar frá fimm sprotafyrirtækjum Startup SuperNova-viðskiptahraðalsins
14:20. 10 mínútna hlé
14:30. Kynningar frá fimm sprotafyrirtækjum Startup SuperNova-viðskiptahraðalsins
15:30. Viðburði lýkur
Tíu sprotafyrirtæki voru valin úr 85 umsóknum til að taka þátt og hafa þau á seinustu 10 vikum sótt vinnustofur í gerð viðskiptaáætlana, markaðssetningu, vöruþróun og öðru sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtæki að þekkja til að ná árangri, að því er segir í tilkynningu.
Til viðbótar við vinnustofurnar hafa þau farið í yfir þrjátíu persónuleg viðtöl við reynslubolta úr viðskiptalífinu sem hafa gefið þeim endurgjöf á þeirra hugmyndir og framkvæmd.
Þessi efnilegu sprotafyrirtæki munu taka fimm mínútna kynningar á föstudaginn í Grósku og í kjölfarið svara spurningum úr pallborði en í því sitja Magnús Scheving athafnamaður og Hekla Arnardóttir, meðeigandi Crowberry Capital.
Nova er stærsti bakhjarl Startup SuperNova.