Valitor varð fyrir netárás síðdegis líkt og Saltpay. Samkvæmt Jónínu Ingvadóttir, upplýsingafulltrúa Valitor, stóð árásin aðeins yfir í um sex mínútur og olli truflunum á þjónustu við viðskiptavini í jafn langan tíma.
„Varnir Valitor komu í veg fyrir að frekari áhrifa gætti. Valitor leggur höfuðáherslu á öryggi kerfa og gagna,“ segir Jónína í skriflegu svari til blaðamanns.