Hugbúnaðarfyrirtækið 1xINTERNET hefur ráðið Fanneyju Þorbjörgu Guðmundsdóttur og Ísabellu Jasonardóttur til starfa hjá fyrirtækinu. Þær verða báðar staðsettar á skrifstofu fyrirtækisins á Íslandi.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá 1xINTERNET.
Fanney Þorbjörg tekur við stöðu fjármálastjóra hjá 1xINTERNET, en hún er hagfræðingur að mennt og með próf í verðbréfamiðlun. Fanney kemur til 1xINTERNET frá Salt Pay þar sem hún starfaði í fjárstýringu.
Fanney er í sambúð með Ævari Hrafni Ingólfssyni, lögfræðingi hjá KPMG og eiga þau saman einn son.
Ísabella hefur tekið við starfi verkefnastjóra hjá 1xINTERNET en hún útskrifaðist með BSc gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík í vor. Ísabella kemur frá Íslandsbanka þar sem hún hefur starfað síðastliðin ár, nú síðast í fyrirtækjaráðgjöf.
Ísabella mun koma til með að leiða hugbúnaðarverkefni hérlendis sem og annarsstaðar í Evrópu.
Ísabella er í sambúð með Magnúsi Karli Magnússyni, meistaranema og handboltaþjálfara.
„Það er auðvitað frábært að geta ráðið gott fólk til liðs við okkur sem skilar sér svo í betri þjónustu til okkar kæru viðskiptavina hérlendis og í Evrópu. Starfsmannahópurinn okkar hefur stækkað töluvert sl. ár og ég fagna því að fá þessar öflugu konur til liðs við fyrirtækið,“ er haft eftir Baddý Sonju Breidert framkvæmdastjóra og eiganda 1xINTERNET í fréttatilkynningu.