Kerskálanum í álveri Aldel í Hollandi hefur verið lokað enda borgar sig ekki lengur að framleiða álið eftir að orkuverðið rauk upp.
Sérfræðingur á íslenskum álmarkaði sem Morgunblaðið ræddi við sagði lokunina þýða minni framleiðslu innan evrópska tollasvæðisins. Fyrir vikið myndi verð til evrópskra álvera hækka og það aftur styrkja stöðu íslenskra álvera.
Verð á áli í kauphöllinni með málma í London nálgast 3.100 dali tonnið og taldi sérfræðingurinn að verðið gæti farið í 4.000 dali vegna lítils framboðs.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu.