Birgir Olgeirsson sem starfað hefur á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar hefur verið ráðinn til flugfélagsins Play sem sérfræðingur í almannatengslum. Bætist hann þar í hóp með Nadine Guðrúnu Yaghi sem var ráðinn samskiptastjóri fyrirtækisins í sumar, en Nadine hafði einnig áður verið starfsmaður sömu fréttadeildar.
Greint er frá vistaskiptum Birgis á Vísi, en þar kemur fram að hann sé með þrettán ára reynslu úr fjölmiðlum, þar af síðustu sex ár hjá Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.