Reitir hafa náð samkomulagi við Íslenskar fasteignir ehf. um sölu á svokölluðum Orkureit fyrir 3.830 milljónir króna.
Um er að ræða fasteignina Ármúli 31 ásamt öllum nýbyggingarheimildum á lóðinni í heild í tengslum við nýtt deiliskipulag sem þegar hefur verið auglýst og er nú í úrvinnslu hjá Reykjavíkurborg.
Tekið er fram í tilkynningu að kaupin nái ekki til fasteignarinnar að Suðurlandsbraut 34, þ.e.a.s. gamla Rafmagnsveituhússins.
Kaupverðið er greitt með peningum við undirritun kaupsamnings. Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á hinu selda og gildistöku deiliskipulags. Gert er ráð fyrir að undirritun kaupsamnings og afhending eigi sér stað á fyrsta ársfjórðungi 2022.
Með samkomulaginu skuldbinda Reitir sig til samstarfs um hönnun, útfærslu og kaupa á um 1.520 fermetrum af atvinnuhúsnæði sem byggt verður á lóðinni.
„Salan mun ekki hafa áhrif á rekstrarafkomu Reita árið 2021 þar sem afhending hins selda mun ekki eiga sér stað fyrr en í ársbyrjun 2022. Með sölunni mun rekstrarhagnaður félagsins lækka um 70 m.kr. á ársgrundvelli. Söluhagnaður vegna viðskiptanna er áætlaður um 1.300 m.kr,“ segir í tilkynningunni.
Orkureiturinn er miðsvæðis í borginni, á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar og nær einnig upp að Ármúla. Reiturinn liggur við fyrirhugaða Borgarlínu, gegnt útivistarsvæði í Laugardal og í nálægð við fjölbreytta verslun og þjónustu, m.a. í Skeifunni.
Tillagan gerir ráð fyrir að lágreist hús sem standa við Ármúla víki fyrir 3-8 hæða nýbyggingum í borgarmiðuðu skipulagi en gamla Rafmagnsveituhúsið fær virðingarsess á lóðinni. Að hámarki verða 436 íbúðir á reitnum ásamt um 4-6 þúsund fermetra atvinnuhúsnæði. Hámarksbyggingarmagn samkvæmt nýju deiliskipulagi er rúmlega 44 þúsund fermetrar.