Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group segir mjög ánægjulegt að félagið hafi skilað hagnaði í fyrsta sinn í tvö ár á þriðja ársfjórðungi 2021. Hann segir þetta afrakstur árangursmikillar uppbyggingar:
„Við sexfölduðum flugframboð í millilandaflugi á milli ára og nam framboðið um 50% af framboði sama tímabils 2019 sem er mjög góður árangur í ljósi krefjandi aðstæðna. Sætanýting var góð í júlí og ágúst og við fluttum fleiri farþega í júlímánuði en fyrstu sex mánuði ársins samanlagt. Þá tók flug yfir Atlantshafið verulega við sér þegar Evrópa opnaði á ferðalög fyrir bandaríska ferðamenn,“ er haft eftir Boga í tilkynningu frá Icelandair Group.
„Við erum stolt af því að hafa náð 86% stundvísi í fjórðungnum þrátt fyrir flóknar ferðatakmarkanir og mikla aukningu í flugi á stuttum tíma. Ástæða þessa árangurs er fyrst og fremst sá sveigjanleiki sem félagið býr yfir – bæði leiðakerfisins og ekki síður starfsfólks okkar sem ég vil þakka fyrir frábæra frammistöðu, úthald og útsjónarsemi við að bregðast hratt við breytingum á mörkuðum okkar og koma auga á öll möguleg tækifæri,“ segir Bogi.
„Þrátt fyrir að við séum á réttri leið, hélt heimsfaraldurinn áfram að hafa áhrif á á starfsemi félagsins. Útbreiðsla Delta afbrigðisins hægði á bókunum í lok fjórðungsins en þær hafa nú aftur tekið við sér. Eftirspurn eftir fraktflutningum var áfram sterk. Icelandair Cargo sérhæfir sig meðal annars í flutningi á ferskum íslenskum fiski og styður þannig við þá mikilvægu útflutningsgrein okkar Íslendinga.
Við nýtum öflugt leiðakerfi okkar til þess að koma ferskum fiskafurðum á fjölbreytta markaði beggja vegna Atlantshafsins og á disk neytandans á innan við 48 tímum en þessar vörur eru jafnframt með lágt kolefnisfótspor samanborið við aðra próteingjafa.“
Hann tekur fram að bókunarstaða félagsins sé góð næstu mánuði og opnun landamæra í Bandaríkjunum þýði að félagið geti nýtt leiðakerfi sitt til fulls í fyrsta skipti síðan í mars 2020.
„Það er mikilvægt fyrir endurreisn ferðaþjónustunnar á Íslandi að við tryggjum samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannalands. Lykilþáttur í því er að íslensk stjórnvöld tryggi að þær ferðatakmarkanir sem eru í gildi á landamærum hér á landi séu einfaldar, ferlið sé skilvirkt og í samræmi við þær reglur sem gilda í löndunum í kringum okkur. Við hjá Icelandair erum vel í stakk búin til að grípa þau tækifæri sem munu gefast á næstu mánuðum með öfluga innviði, sterka lausafjárstöðu, reynslumikið starfsfólk og með því að nýta þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir.“
Uppgjör þriðja ársfjórðungs verður kynnt á morgun klukkan 8.30 en beint streymi verður frá því á vef Icelandair Group. Þar munu Bogi og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs kynna rekstrarniðurstöður og sitja fyrir svörum.