„Mér var þvert um geð að höfða mál gegn þessu góða fyrirtæki, þar sem ég starfaði í 20 ár,“ segir Björn Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sorpu, í yfirlýsingu vegna sátta sem náðst hafa í máli hans gegn Sorpu, vegna starfsloka hans.
Í yfirlýsingunni segir Björn að sáttin marki endalok óþarflegra langrar deilu sem hafi tekið á sig og fjölskyldu sína. Hafi stjórnarformaður og varaformaður stjórnar handsalað samkomulagi við hann um starfslok en „jafnskjótt gengið á bak orða sinna“ og sagt sér upp.
Ástæða uppsagnar Björns var skýrsla innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar, „sem var klárlega vanhæfur í málinu og ber skýrslan öll þess merki,“ segir í yfirlýsingu Björns.
Björn segir dómssáttina fela í sér viðurkenningu á hann hafi verið beittur rangindum með uppsögninni.