Oddný Assa Jóhannsdóttir ráðin til PLAY

Oddný Assa Jóhannsdóttir, forstöðumaður reikningshalds hjá PLAY.
Oddný Assa Jóhannsdóttir, forstöðumaður reikningshalds hjá PLAY. Ljósmynd/PLAY

Oddný Assa Jóhannsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður reikningshalds hjá flugfélaginu PLAY og hóf hún störf þar í september síðastliðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá PLAY.

Hjá PLAY leiðir hún deild reikningshalds og er hluti af stjórnendateymi fjármálasviðs. Þá ber hún ábyrgð á daglegum rekstri reikningshalds og uppgjörum flugfélagsins. Auk þess tekur Oddný þátt í mótun stefnu og framtíðarsýnar fjármálasviðs PLAY. 

Hún er með BSc í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands. Þá er hún löggiltur endurskoðandi.

Oddný kom til PLAY frá KPMG þar sem hún hafði starfað frá 2010, fyrst sem sérfræðingur á endurskoðunarsviði og sem endurskoðandi og verkefnastjóri.

„Við erum gríðarlega ánægð með að Oddný sé orðin partur af PLAY liðinu enda mun hún hjálpa okkur við að byggja upp flott félag til framtíðar,” segir Þóra Eggertsdóttir, fjármálastjóri PLAY.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK