Alvotech bætir við sig 4.100 fermetrum

Snorri Halldórsson, Sigríður Ósk Pálmadóttir og Jón Viðar Guðjónsson við …
Snorri Halldórsson, Sigríður Ósk Pálmadóttir og Jón Viðar Guðjónsson við formlega opnun hússins. Ljósmynd/Alvotech

Líftæknilyfjafyrirtækið Alvotech hefur gert langtíma leigusamning um afnot nýs 4.100 fermetra húsnæði að Lambhagavegi í Úlfarsárdal í Reykjavík. 

Fyrirtækið stefnir að því að setja sína fyrstu vöru á markað bráðlega og hefur því tekið húsnæðið í notkun til að styrkja framleiðsluna, er kemur fram í tilkynningu frá Alvotech. 

Byggingin mun hýsa lager og rannsóknarstofur fyrir hráefni til lyfjagerðar, ásamt skrifstofum. Framleiðsla mun áfram fara fram í hátæknisetri Alvotech í Vatnsmýrinni. 

„Nýlega náðust mikilvægir áfangar í átt að skráningu lyfsins, en sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (CHMP), hefur mælt með samþykki stofnunarinnar á AVT02 fyrir markaði Evrópusambandsins. Þá hefur Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) nýlega staðfest að umsókn um markaðsleyfi fyrirtækisins á AVT02 sé fullbúin og stefnir eftirlitið á að gera lokaúttekt á verksmiðjunni á næstu misserum,“ segir í tilkynningu frá félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK