Kristín Katrín ráðin til Eimskips

Kristín Katrín, forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip
Kristín Katrín, forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip Ljósmynd/Eimskip

Kristín Katrín Guðmundsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip og mun hefja störf á næstu vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Í tilkynningunni er Kristínu Katrínu lýst sem reynslumiklum stjórnanda og öflugum leiðtoga. Síðustu ár hefur hún starfað innan Icelandair samstæðunnar, síðast sem forstöðumaður sölu – og bókunarsviðs Icelandair Hotels. Þar á undan starfaði hún meðal annars í tekjustýringu hjá félaginu. Kristín Katrín er með BS í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Björn Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptastýringar Eimskips fagnar komu Kristínar Katrínar og býður hana velkomna í hópinn.

„Innflutningur til Íslands er einn af lykilþáttum í okkar samfélagi og hlutverk Kristínar Katrínar verður að leiða hóp reynslumikilla starfsmanna okkar í að bjóða áfram framúrskarandi þjónustu og öflugar flutningalausnir til okkar mikilvægu viðskiptavina. Við væntum mikils af henni og hlökkum til að fá hana í hópinn,“ segir Björn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK