Lilja Pálsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður fjár- og áhættustýringar hjá Play. Lilja verður hluti af stjórnendateymi fjármálasviðs Play og mun bera ábyrgð á daglegum rekstri fjár- og áhættustýringar. Hún mun leiða greiningu og mat á áhættuþáttum í starfsemi félagsins og taka þátt í mótun og framtíðarsýn sviðsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Hún kemur til Play frá Landsbankanum þar sem hún hefur starfað sem sérfræðingur í áhættustýringu frá 2018. Fyrir það var hún viðskiptastjóri lögaðila í eignastýringu bankans. Þar áður starfaði Lilja í gjaldeyris- og afleiðumiðlun hjá Arion banka, markaðsviðskiptum hjá Glitni og við innkaupastýringu og hrávöruvarnir hjá Skeljungi.
Ásamt því að vera með B.Sc og M.Sc gráður í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands þá er Lilja einnig með próf í verðbréfamiðlun og ACI, segir í tilkynningu.