Linda Fanney Valgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Alor ehf, að því er fram kemur í tilkynningu.
Alor er hátæknifyrirtæki sem var stofnað á árinu 2020 og vinnur að því að þróa og síðar framleiða umhverfisvænar álrafhlöður sem munu nýtast í að hraða orkuskiptum m.a. í samgöngum, sjávarútvegi, landbúnaði og annarri framleiðslu.
Linda Fanney er lögfræðingur en hún starfaði síðast sem staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu matvælaöryggis- og fiskeldis í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þá er hún með lögmannsréttindi og stundaði lögmennsku um árabil, starfaði á lögfræðisviði Arion banka og á hjálpar- og mannúðarsviði Rauða krossins á Íslandi.
„Rafhlöðuframleiðsla hefur oft verið nefnd sem lykilþáttur í að hraða orkuskiptunum og það er augljóst að markaður fyrir umhverfisvænar álrafhlöður Alor er mjög stór. Ég er full eftirvæntingar að leiða félagið og stolt af því að taka þátt í rekstri fyrirtækis sem getur lagt mikið af mörkum í baráttunni gegn loftlagsvandanum“, er haft eftir Lindu Fanney í tilkynningu.
Hún er ekki eina nýja andlitið hjá Alor því Rakel Eva Sævarsdóttir mun taka sæti í stjórn félagsins. Rakel Eva er nýlega tekin við stöðu forstöðumanns sjálfbærni, og samfélagsábyrgðar hjá PLAY en þar áður gegndi hún stöðu sérfræðings hjá Marel á sviði sjálfbærni innan fiskiðnaðar. Hún mun koma inn í stjórnina með verðmæta þekkingu og reynslu m.a. á sviði sjálfbærni og nýsköpunar.
„Þróun og framleiðsla á umhverfisvænum álrafhlöðum er ekki aðeins einstaklega spennandi verkefni heldur þarft enda mun það stuðla að hraðari orkuskiptum í landi, sjó og öðrum iðnaði. Framleiðsla á nýrri kynslóð rafhlaðna frá Alor mun skapa fjölda nýrra starfa á Íslandi og byggja upp þekkingu sem ekki er til staðar hér á landi í dag. Möguleikar félagsins að hafa jákvæð áhrif gætir ekki aðeins á Íslandi heldur um allan heim. Það er mér mikil ánægja, sem stjórnarkona Alor, að fá að taka þátt í þessari mikilvægu vegferð að hraða og auðvelda nauðsynleg orkuskipti“, er haft eftir Rakel Evu í tilkynningu.