Jens og Heiða ráðin til rekstrarsviðs Icelandair

Heiða og Jens eru mætt á rekstrarsviðið.
Heiða og Jens eru mætt á rekstrarsviðið.

Jens Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair Group. Samhliða ráðningu Jens Heiða Njóla Guðbrandsdóttir ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri rekstrarsviðs. 

Jens Bjarnason hefur víðtæka reynslu af flugrekstri en hann var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair á árunum 2015-2018 auk þess sem hann hefur sinnt ýmsum verkefnum hjá Icelandair Group. Hann hóf störf við verkfræðideild Icelandair árið 1984 og um tíma var hann framkvæmdastjóri loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar. Hann var flugrekstrarstjóri Icelandair á árunum 1996-2005 og gegndi stöðu framkvæmdastjóra tækniþjónustu Icelandair (ITS) á árunum 2005-2011. Á árunum 2011-2015 var Jens forstöðumaður flugrekstrar- og tæknimála hjá alþjóðasamtökum flugfélaga, IATA, í Montreal í Kanada. Jens er með doktorsgráðu í verkfræði frá Northwestern University í Illinois í Bandaríkjunum.

Heiða Njóla Guðbrandsdóttir hefur starfað hjá Icelandair Group frá árinu 2016, fyrst sem verkefnastjóri en síðar deildarstjóri verkefnastofu rekstrarsviðs. Síðasta ár hefur hún starfað sem forstöðumaður Operations Support á rekstrarsviði. Áður hefur Heiða Njóla meðal annars starfað sem þjónustustjóri hjá Marorku og sérfræðingur í ástandsstýrðu viðhaldi hjá Rio Tinto Alcan á Íslandi. Heiða Njóla er með MSc gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK