Lægsta meðalverðið hjá Costco og Lyfjaveri

mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Costco bauð oftast upp á lægsta verðið í verðlagskönnun Alþýðusambands Íslands (ASÍ), á 53 vörum af þeim 149 sem könnunin náði til, en Rimaapótek var næst oftast með lægsta verðið, í 11 tilvikum. Meðalverð var lægst hjá Costco og Lyfjaveri. 

Hæsta verðið var oftast að finna hjá Lyfjabúrinu, í 39 tilvikum en Lyfja var næst oftast með hæsta verðið í 33 tilvikum.

Þetta kemur fram á vef ASÍ.

Sambandið kannaði verð í öllum apótekum á landinu eða 26 útibúum. Borgarapótek í Borgartúni var eina apótekið sem neitaði þátttöku í könnuninni.

„Algengast var að munur á hæsta og lægsta verði væri á bilinu 40-60% eða í 62 tilvikum af 149. Í 58 tilvikum var munurinn á bilinu 20-40%. Verðlagseftirlit ASÍ hvetur neytendur til að spyrja um samheitalyf, sem gætu verið á hagstæðara verði og athuga með afsláttakjör,“ segir á vef ASÍ.

„Með því að skoða meðalverð er auðveldara að átta sig á verði hjá þeim verslunum sem eru hvorki með hæsta verðið né það lægsta. Ef litið er til meðalverðs eða hversu hátt eða lágt verð á vörum í könnuninni var að jafnaði hjá söluaðilum má sjá að Costco var að meðaltali með lægsta verðið. Vöruúrvalið hjá Costco var einnig minnst en einungis 63 vörur voru til af 149 sem könnunin náði til. Taka skal fram að til að geta keypt lyf hjá Costco verður að greiða árlegt aðildargjald upp á 4.800 kr. Meðalverð á vörum í könnuninni var næst lægst hjá Lyfjaveri sem var með töluvert meira úrval en Costco eða 135 vörur af 149. Lyfjabúrið með hæsta meðalverðið en 115 vörur fengust þar og Lyfja var með næst hæsta meðalverðið. Í töflunum hér að neðan má sjá uppröðunina á söluaðilum eftir meðalverði og fjölda vara sem til var í hverri verslun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK