Ítalir sekta Amazon um 162 milljarða

Merki Amazon á húsnæði fyrirtækisins í Brandizzo, sem er skammt …
Merki Amazon á húsnæði fyrirtækisins í Brandizzo, sem er skammt frá Tórínó á Ítalíu. AFP

Samkeppnisyfirvöld á Ítalíu hafa lagt 1,1 milljarðs evra sekt á fyrirtækið Amazon fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Sektin samsvarar um 162 milljörðum kr.

Þetta er nýjasta málið gegn bandarískum tæknirisum í Evrópu, en Evrópusambandið hefur á undanförnum misserum beint sjónum sínum sífellt meira að því hvernig þessi fyrirtæki stunda sín viðskipti í álfunni.

Samkeppnisyfirvöld á Ítalíu segja að Amazon hafi nýtt sér markaðsráðandi stöðu með því að nýta sér eigin þjónustu á Ítalíu sem getur tekið við og sent pakka. Þetta hafi haft neikvæð áhrif á önnur fyrirtæki sem nota ekki þessa póst- og flutningsþjónustu.

Ákvörðun ítalskra samkeppnisyfirvalda telur 250 blaðsíður. Þar segir að þessi aðferðafræði Amazon sé litin mjög alvarlegum augum þar sem hún hafi neikvæð áhrif á samkeppni, eða alfarið komi í veg fyrir samkeppni á umræddum svæðum.

Forsvarsmenn Amazon mótmæla þessu harðlega, segja að sektin sé óréttlát og úr öllu hófi. Þeir segjast ennfremur ætla að áfrýja málinu.

Fyrir um hálfum mánuði lagði sama eftirlitsstofnun 68,7 milljóna evru sekt á Amazon fyrir að hafa brotið gegn ESB-löggjöf með því að refsa söluaðilum sem seldu vörur frá Apple og Beats. Stofnunin gerði ennfremur Apple gert að greiða 134,5 milljóna evra sekt í sama máli.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK