Ráðstöfunartekjur heimila jukust um 6,34% á þriðja ársfjórðungi 2021 í samanburði við sama tímabil í fyrra.
Áætlað er að ráðstöfunartekjur á mann hafi numið tæplega 1,1 milljón króna á ársfjórðungnum og hafi aukist um 4,4% frá sama tímabili í fyrra.
Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 0,1% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,3% á sama tímabili, að því er segir í tilkynningu Hagstofu Íslands.
Heildartekjur heimilanna jukust um 7,8% á þriðja ársfjórðungi 2021 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna eru launatekjur en þær jukust um 9,2% frá sama ársfjórðungi í fyrra.
Áætlað er að eignatekjur hafi aukist um 10% frá sama ársfjórðungi í fyrra sem skýrist að hluta af auknum innlánum en áætlað er að vaxtatekjur hafi aukist um 11,5% á tímabilinu.