Íslandsstofa og Markaðsstofur landshlutanna hafa skrifað undir samning um samvinnu við erlenda markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað. Þetta kemur fram í tilkynningu Íslandsstofu.
Íslandsstofa og Markaðsstofurnar hafa unnið náið saman um árabil en nú hefur samstarfið verið formgert í samræmi við skilgreint hlutverk nýrra áfangastaðastofa sem Markaðsstofurnar sinna í sínum landshlutum. Samningurinn er til þriggja ára frá 2021 til og með 2023, að því er greint frá í tilkynningunni.
Haft er eftir Pétri Óskarssyni, framkvæmdastjóra Íslandsstofu, að markaðssetning á Íslandi sem áfangastað sé samvinnu verkefni.
„Ísland hefur undanfarin ár markað sér stöðu sem þekktur áfangastaður en það hefur ekki gerst af sjálfu sér og við erum í stöðugri samkeppni við aðra áfangastaði. Árið um kring vinnur fjöldi fólks að því að vekja athygli á Íslandi til að skapa viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu og tengdum greinum í öllum landshlutum. Við erum lítil í stóra samhenginu en með því að leggja saman krafta okkar náum við slagkrafti og þessir samningar eru liður í að efla gott samstarf,“ segir hann.
Unnið verður eftir stefnumótun stjórnvalda um að tryggja sjálfbæran vöxt ferðaþjónustu um land allt í krafti gæða og fagmennsku og að Ísland verði leiðandi í sjálfbærri þróun árið 2030. Meðal verkefna eru upplýsingamiðlun, samskipti við fjölmiðla og áhrifavalda, ráðgjöf um efni á vef og markaðsefni, uppbygging á sameiginlegum myndabanka og fleira.
„Markaðsstofur landshlutanna hafa unnið í þéttu samstarfi við Íslandsstofu síðastliðin ár með áherslu á erlenda markaðssetningu,“ er haft eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands fyrir hönd Markaðsstofanna.
„Með því að formgera samstarfið og setja fjármagn í verkefnin verður slagkrafturinn aukinn til muna. Það er því mikið fagnaðarefni að stíga þetta skref og hlökkum við á Markaðsstofunum til að vinna sameiginlega að markaðssókn fyrir landið allt,“ segir hún.
Í tengslum við samningana heimsóttu fulltrúar Íslandsstofu alla landshlutana til að hitta hagsmunaaðila og kynna sér starfsemi og stöðu ferðaþjónustunnar. Markaðsstofurnar stilltu upp dagskrá og sáu um leiðsögn um sína landshluta.