Spennandi en raunhæf vinningstillaga

25 fyrirtæki sóttust eftir því að taka þátt.
25 fyrirtæki sóttust eftir því að taka þátt. Ljósmynd/Aðsend

Alþjóðlega hönnunar- og skipulagsstofan KCAP, með höfuðstöðvar í Sviss, varð hlutskörpust í samkeppni sem Kadeco hélt um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll til ársins 2050.

Mikill áhugi var á verkefninu, sem talið er hafa mikla sérstöðu vegna þeirra möguleika sem felast á svæðinu, að því er kemur fram í tilkynningu frá Kadeco.

25 fyrirtæki víða að úr heiminum sóttust eftir að taka þátt í forvali. Þrjú þeirra voru valin til að skila mótuðum tillögum byggðum á efnahagslegri greiningu, eða KCAP, ARUP og Jacobs. Ekki var um hefðbundna hönnunarsamkeppni að ræða heldur var einnig óskað eftir atvinnuþróunar- og fjárfestingaráætlun sem héldist í hendur við alla hönnun.

„Við erum mjög ánægð með þennan mikla áhuga. Mörg viðurkennd fyrirtæki, sem sinna stórverkefnum við þróun og skipulag svæða og borga, óskuðu eftir upplýsingum og þátttöku í forvalinu. Þau fyrirtæki sem voru valin skiluðu öll mjög áhugaverðum hugmyndum sem við getum nýtt í framhaldinu. Vinningstillagan er mjög spennandi en á sama tíma raunhæf,” segir Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, í tilkynningunni.

Pálmi Freyr Randversson.
Pálmi Freyr Randversson. Ljósmynd/Aðsend

Fram kemur að alþjóðlega teymið sem stendur að vinningstillögunni sé þverfaglegt og með mikla reynslu.  Í tillögunni er meðal annars hugmynd um að forgangsbraut verði lögð fyrir vistvæna fólksflutninga milli Keflavíkurflugvallar og  höfuðborgarsvæðisins, þar sem hún tengdist Borgarlínu. Þessi farartæki sem tengd yrðu forgangsbrautinni ættu að komast hraðar á milli en einkabílar og nýtast vel farþegum og starfsfólki á flugvallarsvæðinu.

„Með þessu verða almenningssamgöngur á svæðinu styrktar og unnið að markmiðum  Íslands um kolefnishlutleysi og sjálfbærni,” segir Pálmi Freyr í tilkynningunni.

Eins og íslensk geimferðaáætlun

Anouk Kuitenbrouwer, arkitekt hjá KCAP, segir að hennar félagar hlakki mjög til samstarfsins við Kadeco. Í þróunaráætluninni felist mikil og spennandi tækifæri.

„Ég leyfi mér að líkja þróunaráætluninni við íslenska geimferðaáætlun. Svo þýðingarmikið verkefni krefst yfirvegaðrar dirfsku. Það hvernig til tekst ræðst svo auðvitað af viðbrögðum fyrirtækja og almennings. Í þetta sóttum við innblástur í hönnunarvinnunni en nálgumst hana af varfærni og raunsæi. Mikilvæga hluta svæðisins má þróa í áföngum og um leið varðveita með hagkvæmri landmótun þau gæði sem felast í opnum víðernum umhverfis það,“ segir hún í tilkynningunni.

Opinn fundur verður haldinn í Hljómahöll í Reykjanesbæ um kynningu á vinningstillögunni í lok janúar á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK