Styrkja atvinnusköpun fyrir flóttakonur

Frá vinstri: Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, Aldís …
Frá vinstri: Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, Aldís Eik Arnarsdóttir og Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

66°Norður og UN Women á Íslandi hafa fengið styrk úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins um þróunarsamvinnu til að vinna að verkefni til atvinnusköpunar fyrir flóttakonur frá þróunarríkjum í Tyrklandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands.

Konurnar muni fá þjálfun í fataframleiðslu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og Bjarney Harðardóttir hjá 66°Norður skrifuðu undir samning í gær um tæplega 30 milljóna króna styrk ráðuneytisins gegn sambærilegu mótframlagi fyrirtækisins.

Verkefnið snýr að því að vinna að atvinnusköpun fyrir konur á flótta frá Sýrlandi, Afganistan og Írak, en þær fá þjálfun í fataframleiðslu með fjárhagslegt sjálfstæði að leiðarljósi. Þær læra að endurnýta efni og styrkja með því hringrásarhagkerfi innan SADA miðstöðvarinnar sem hýsir þær. Samvinnuverkefnið er hið fyrsta sinnar tegundar í Tyrklandi og er starfrækt í samstarfi við UN Women, en UN Women á Íslandi mun vinna að framgangi verkefnisins og hafa eftirlit með því, að því er greint frá í tilkynningunni.

Fjöldi kvenna eru á flótta undan ofbeldi og ofríki víða …
Fjöldi kvenna eru á flótta undan ofbeldi og ofríki víða um heiminn. KENZO TRIBOUILLARD

Vilja styðja við valdeflingu og efla sjálfbærni

Haft er eftir Þórdísi Kolbrúnu að framlag 66°Norður og UN Women á Íslandi sýni vel hvers fyrirtæki og félagasamtök á Íslandi séu megnug þegar kemur að þróunarsamvinnu.

„Flóttakonurnar hafa flestar misst maka sinn og eru fyrirvinnur heimila sinna. Staða þeirra er bág og réttindi takmörkuð. Þetta verkefni skapar tekjur fyrir áframhaldandi starfsemi SADA miðstöðvarinnar, sem er þeirra eina tekjulind, stuðningsnet og athvarf,“ sagði hún við undirritun samningsins.

Þá segir Bjarney það virkilega ánægjulegt að sjá samstarfsverkefnið með UN Women og SADA miðstöðinni verða að veruleika og að það hefði ekki verið mögulegt nema með stuðningi frá Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins.

„Fyrirtækið hefur ávallt haft jafnrétti og sjálfbærni í öndvegi og hringrásarkerfið er leiðarljós starfseminnar þar sem við endurnýtum og gefum afgangsefnum framhaldslíf. Í þessu verkefni erum við að styðja við valdeflingu kvenna á flótta og á sama tíma að efla sjálfbærni.“ 

Verkefnið snýr að því að vinna að atvinnusköpun fyrir konur …
Verkefnið snýr að því að vinna að atvinnusköpun fyrir konur á flótta frá Sýrlandi, Afganistan og Írak, en þær fá þjálfun í fataframleiðslu með fjárhagslegt sjálfstæði að leiðarljósi. AFP

Verði vonandi hvatning fyrir önnur fyrirtæki

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir samvinnuverkefni sem þetta, þar sem stjórnvöld, einkafyrirtæki, frjáls félagasamtök og alþjóðastofnun vinni saman, sé nýtt af nálinni og ótrúlega spennandi tækifæri fyrir UN Women á Íslandi.

„Verkefnið hefur bein áhrif á atvinnutækifæri flóttakvenna, stuðlar að fjárhagslegu sjálfstæði þeirra og þróun hringrásarhagkerfis. Vonandi verður verkefnið hvatning fyrir önnur fyrirtæki til að taka þátt í þróunarsamvinnu- og mannúðarverkefnum og efla um leið sjálfbærni og fjárhagslegt sjálfstæði  kvenna og stúlkna um allan heim. Við hjá UN Women á Íslandi erum mjög þakklát fyrir stuðning utanríkisráðuneytisins og 66°Norður og hlökkum mikið til samstarfsins næstu þrjú árin,“ segir hún.

Verkefnið þykir falla vel að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, meðal annars markmiðum um jafnrétti kynjanna, góða atvinnu og hagvöxt, nýsköpun og uppbyggingu og samvinnu um markmiðin, að því er greint frá í tilkynningu Stjórnarráðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK