Skeljungur tilkynnti í gær að fasteignafélagið Kaldalón muni kaupa 13 eignir af félaginu fyrir 5.989 milljónir. Kaldalón mun borga að lágmarki tæplega 3,6 milljarða í reiðufé og hins vegar með hlutum í fyrirtækinu að verðmæti allt að tæpum 2,4 milljörðum.
Orkan IS, dótturfélag Skeljungs, mun síðan leigja fasteignirnar til 20 ára af Kaldalóni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skeljungi.
Skeljungur hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við F33 ehf. þar sem Skeljungur og F33 hyggjast stofna sérstakt félag sem mun þróa fimm fasteigna.
„Áætlað eiginfjárframlag Skeljungs í formi fasteignanna nemur 2.058,5 mkr. samkvæmt viljayfirlýsingunni. Gert er ráð fyrir að fasteignirnar verði leigðar Orkunni IS ehf,“ segir í tilkynningunni.
Skeljungur skrifaði einnig undir viljayfirlýsingu við Ötul ehf. þess efnis að stefnt er á það að Ötull kaupi fasteignina að Austurströnd 7, 170 Seltjarnarnesi og leigi Orkunni til baka. Skeljungur er í viðræðum við Reginn hf. Um kaup á fasteign að Litlatúni í Garðabær sem yrði síðan leigt Orkunni.
Ef öll viðskiptin ganga eftir verður söluvirði fasteigna Skeljungs tæpir 8,8 milljarðar. Áætluð leigugjöld Orkunnar vegna fasteignanna nema um 493 milljónum króna á ársgrundvelli og 433 milljónum króna með tilliti til lækkunar á rekstrarkostnaði eignanna. Áætlaðar leigutekjur Orkunnar vegna endurleigu eigna nema 115 milljónum króna á ársgrundvelli.