Árlegt Útboðsþing Samtaka iðnaðarins fer fram í dag klukkan 13:00 og mun standa til klukkan 15:00. Á þinginu kynna fulltrúar 11 opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins. Hægt verður að fylgjast með þinginu í spilaranum hér að neðan, en dagskrána má finna hér neðst.
Dagskrá Útboðsþings 2022
- Fundarstjórn – Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
- Setning– Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
- Ávarp – Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Reykjavíkurborg– Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
- Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir- Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
- Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu- Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
- Orka náttúrunnar– Óskar Friðrik Sigmarsson, forstöðumaður Stefnu og árangurs
- Landsvirkjun– Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
- Faxaflóahafnir- Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri
- Vegagerðin- Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
- Landsnet- Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
- NLSH- Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs
- Veitur- Katrín Karlsdóttir, leiðtogi verkefnastjóra
- Isavia- Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri Hönnunar og framkvæmda
- Samantekt - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins