Keahótel ehf. hafa tekið við rekstri Sigló Hótels og tengdrar starfsemi. Samningurinn gildir til 17 ára og hefur þegar tekið gildi.
Keahótel leigir allan rekstur Sigló Hótels á Siglufirði. Þar er undir hótelið sjálft, veitingastaðirnir Sunna, Rauðka og Hannes Boy ásamt Sigló gistiheimili. Kvika banki var Sigló Hóteli til ráðgjafar við gerð samningsins, að því er kemur fram í tilkynningu.
Með þessum samningi verður Sigló Hótel níunda hótelið í hótelkeðju Keahótela, sem meðal annars reka Hótel Kea á Akureyri, Hótel Borg í Reykjavík og Hótel Kötlu á Vík.
„Þetta er spennandi tækifæri en ég hef mikla trú á svæðinu og er stoltur af því að fá Sigló Hótel í okkar raðir. Ég hef miklar væntingar til áframhaldandi ferðaþjónustu á svæðinu. Samningurinn gefur færi á að efla markaðsstarf til muna og nýta samlegðaráhrif hótelkeðjunnar í öflugu sölu- og markaðsstarfi, bæði innanlands og á alþjóðavísu," segir Páll L. Sigurjónsson, forstjóri Keahótela í tilkynningunni.
Róbert Guðfinnsson og fjölskylda hans stofnuðu Sigló Hótel árið 2015. Hótelið er búið 68 herbergjum, þar er að finna veitingastað, útipottasvæði og þurrgufu. Hótelið stendur við höfnina á Siglufirði og er orðið eitt af aðalkennileitum Siglufjarðar.
„Núna, þegar við sjáum fram á að ferðaþjónustan fari að taka við sér eftir tvö krefjandi ár, þá er mikil þörf á umtalsverðri endurskipulagningu í greininni. Við erum stolt af því að hafa náð samkomulagi við Keahótel og að hafa komið rekstrinum í góðar hendur. Við erum sannfærð um að félag með jafn öfluga bakhjarla og Keahótel er, verði leiðandi afl í íslenskri ferðaþjónustu á næstu árum,“ segir Róbert Guðfinnsson, stofnandi Sigló Hótels, í tilkynningunni.
Aron Pálsson hótelstjóri Hótel Kea verður einnig hótelstjóri á Sigló Hóteli og María Elín Sigurbjörnsdóttir verður áfram aðstoðarhótelstjóri.
„Við munum hlúa að því sem vel hefur verið gert og meðal annars einblína á upplifunarpakka sem boðið hefur verið upp á með góðri raun eins og skíðanámskeið, þyrluskíðamennsku, golfi og fleira. Við tökum við góðu búi þar sem hótelið er í fullum rekstri og vel mannað góðu starfsfólki,“ segir Aron Pálsson hótelstjóri Sigló Hótel.