Ása Óðinsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra á hjartarannsóknarstofu Landspítalans frá 1. febrúar 2022.
Ása lauk B.S.-námi í lífeindafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007, að því er kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.
Hún starfaði sem lífeindafræðingur frá útskrift á Vefjarannsóknarstofunni ehf. og Rannsóknarstofunni Glæsibæ en kom til starfa á hjartarannsóknarstofu Landspítala í maí 2019.