Forstjóri Símans furðar sig á ummælum ráðherra

Orri Hauksson segir Símann ekki hafa fengið neinn styrk sem …
Orri Hauksson segir Símann ekki hafa fengið neinn styrk sem hægt sé að skila. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Orri Hauksson forstjóri Símans fagnar fyrirætlunum Lilju Alfreðsdóttur, viðskipta- og menningarmálaráðherra, um að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði. Hann mælir á sama tíma gegn því að fjölmiðlastyrkir verði veittir.

Lilja sagði á málþingi á vegum Blaðamannafélagsins í gær að Sýn og Síminn væru „of fínir“ fyrir styrkina. Spurði Lilja hvort miðlarnir gætu ekki þá vinsamlegast skilað peningunum í ríkissjóð og eftirlátið litlu og meðalstóru miðlunum styrkina.

Í samtali við mbl.is kveðst Orri furða sig á þessum ummælum þar sem Síminn hefur ekki fengið fjölmiðlastyrk, sökum þess að hann rekur ekki fréttaveitu.  

„Það er greinilega einhver grundvallarmisskilningur í gangi, við höfum ekki þegið krónu í styrk,“ segir hann og á þar við fjölmiðlastyrk sem Lilja vísaði til.

„Við eigum erfitt með að skila einhverju sem við höfum ekki fengið,“ segir Orri á léttu nótunum.

Umfang Rúv og erlend samkeppni helstu áskoranir

„Við erum mjög ánægð með þessar nýju áherslur sem ráðherra boðar, varðandi að taka Ríkisútvarpið út af auglýsingamarkaði. Við teljum að vandamál íslenskra einkarekinna miðla séu fyrst og fremst af tvennum toga – annars vegar er það umfang ríkisútvarpsins og það að Ríkisútvarpið sé með sífelllt hærri hlutdeild af auglýsingamarkaðnum hérna heima.“

„Hins vegar er það samkeppni að utan – samkeppni að utan er fín en hún verður að vera á jafnréttisgrundvelli,“ segir Orri og útskýrir að erlendir miðlar borgi ekki skatta í sama mæli og íslenskir miðlar, og beri ekki þýðingaskyldu.

Þá mælir Síminn gegn styrkjaleiðinni, meðal annars vegna þess að samkeppni milli einkaaðila raskist. Auk þess eigi Síminn talsvert innlegg í íslenskt samfélag með sjónvarpsþáttagerð og fleiru sem eigi erindi við almenning, en styrkirnir einskorðast við rekstur fréttastofa.

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.
Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar. mbl.is/RAX

Sýn leggst gegn styrkjunum

Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar sagði í samtali við mbl.is að hann teldi réttast að taka Rúv. af auglýsingamarkaði og að falla frá fjölmiðlastyrkjum. 

„Um leið og svona styrkjakerfi byrjar vindur það upp á sig. Þetta getur skapað freistnivanda hjá smærri og veikburða miðlum sem gætu farið að flytja fréttir sem passa styrkjunum.“ Betur færi á að halda úti frjálsum og óháðum fjölmiðlum sem ekki eru litaðir af ríkisinngripum.

Aðspurður kvaðst hann ekki hafa kynnt sér ummæli ráðherra, um að fyrirtæki sem gagnrýndu styrkina ættu að skila þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK