Telja sig þurfa að hækka verð

Fyrirtæki telja sig þurfa að hækka verð vegna hækkana á …
Fyrirtæki telja sig þurfa að hækka verð vegna hækkana á erlendum aðföngum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um 80% félagsmanna Félags atvinnurekenda (FA), sem svöruðu könnun félagsins í síðustu viku, sjá fram á að þurfa að hækka verð vegna hækkana á erlendum aðföngum, að því er kemur fram á vef félagsins.

46% svarenda sögðust mjög sammála fullyrðingunni „fyrirtækið mitt sér fram á að þurfa að hækka verð vegna hækkana á erlendum aðföngum“ og 34% sögðust sammála. 89% sögðu að verð á erlendum aðföngum til fyrirtækisins hefði hækkað vegna hækkana á alþjóðamörkuðum. Þá sögðust 78% svarenda þegar hafa þurft að hækka verð.

Helmingur telur ekkert svigrúm til launahækkana

„Í könnuninni var spurt hvaða svigrúm stjórnendur aðildarfyrirtækja teldu til hækkunar á launakostnaði seinna á árinu. Rúmlega helmingur taldi svigrúmið ekkert, en rúmlega þriðjungur að það væri á bilinu 2-3%. Að meðaltali töldu fyrirtækin sem svöruðu könnuninni svigrúm til 1,4% hækkunar launakostnaðar,” segir í tilkynningu.

Rúmlega helmingur svarenda sagði svigrúm til hækkunar launakostnaðar ekkert.
Rúmlega helmingur svarenda sagði svigrúm til hækkunar launakostnaðar ekkert. Skífurit/Félag atvinnurekenda

Könnunin, sem var framkvæmd dagana 31. janúar til 4. febrúar, var send í tölvupósti til 163 félagsmanna með beina félagsaðild. Af þeim svöruðu 57, eða 35%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK