Anna Fríða tekur við markaðsmálum Play

Anna Fríða Gísladóttir er nýr forstöðumaður markaðsmála hjá Play.
Anna Fríða Gísladóttir er nýr forstöðumaður markaðsmála hjá Play.

Anna Fríða Gísladóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála hjá flugfélaginu Play, en hún mun leiða markaðsstarf félagsins og fara fyrir áframhaldandi uppbyggingu á ásýnd félagsins.

Anna Fríða tekur við stöðu forstöðumanns markaðsmála af Steinari Þór Ólafssyni. Í tilkynningu frá félaginu er Steinari þakkað fyrir vel unnin störf hjá flugfélaginu og óskað velfarnaðar í komandi verkefnum. 

Anna Fríða er 31 árs og kemur til Play frá Bioeffect. Þar starfaði hún sem „Brand & Campaign Manager“ á alþjóðavísu ásamt því að sjá um markaðsmál fyrirtækisins á Íslandi. Þar áður var Anna Fríða markaðsstjóri Domino´s á Íslandi í 7 ár og sat í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Hún á einnig sæti í stjórn ÍMARK, samtökum markaðsfólks á Íslandi, og sér um vikulegan lið á samfélagsmiðlum ÍMARK þar sem farið er yfir fréttir vikunnar í heimi markaðsmála á Íslandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK