Fylgja þarf lögum um frystingu fjármuna

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

Utanríkisráðherra hefur innleitt þvingunaraðgerðapakka Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi og tilteknum rússneskum ríkisborgurum vegna ólögmætrar innrásar Rússlands í Úkraínu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Segja aðgerðirnar geta tekið tíðum breytingum

Þvingunaraðgerðirnar fela m.a. í sér frystingu fjármuna auk annarra aðgerða sem snúa að fjármálamarkaði, að því er greint frá í tilkynningunni. Hvetur Fjármálaeftirlitið tilkynningarskylda aðila til þess að kynna sér vel hvaða aðila um ræðir og að fylgjast vel með breytingum á lista stjórnarráðsins.

Þá áréttar Fjármálaeftirlitið skyldu tilkynningarskyldra aðila skv. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka til að fylgja lögum nr. 64/2019 um frystingu fjármuna o.fl. en skv. framangreindum lögum ber tilkynningarskyldum aðilum að uppfylla tilteknar kröfur um frystingu fjármuna. Í því sambandi er vakin sérstök athygli á kröfum ákvæða 4. gr. og 7. gr. laganna en þær felast m.a. í eftirfarandi aðgerðum:

  1. Skylt er að hafa viðeigandi eftirlitskerfi (eða eftir atvikum ferla og aðferðir) til að meta hvort viðskiptamenn séu á listum yfir alþjóðlegar þvingunaraðgerðir. Með eftirlitskerfi er átt við tölvukerfi eða gagnagrunn sem sækir ávallt nýjustu upplýsingar um þá sem eru á listum yfir þvingunaraðgerðir. Skimun gagnvart slíkum listum skal fara fram bæði í upphafi viðskiptasambands og reglulega á samningstímanum. Þeir sem fengið hafa undanþágu frá kröfu um slík eftirlitskerfi á grundvelli 1. mgr. 7. gr. þurfa þó ávallt að hafa ferla og aðferðir til að meta hvort viðskiptamenn þeirra séu á listum yfir þvingunaraðgerðir. Mikilvægt er að tilkynningarskyldir aðilar endurmeti reglulega þörf á tíðni eftirlits.
  2. Skylt er að frysta fjármuni og efnahagslegan auð (hér eftir „fjármuni“) ef í ljós kemur að viðskiptamaður er á listum yfir þvingunaraðgerðir, í samræmi við reglugerðir sem settar eru á grundvelli laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008. Hér er m.a. átt við fjármuni sem eru í eigu viðskiptamannsins, hvort sem hann á þá með beinum eða óbeinum hætti (hefur yfirráð yfir þeim), hefur þá í sinni vörslu eða stýrir þeim. Nái eignarhaldið til fjármuna að hluta, skal frystingin ná til þeirra í heild sinni.
  3. Tilkynna skal eigendum fjármuna, utanríkisráðuneytinu og fjármálaeftirlitinu um frystingu fjármuna. Tilkynningar um frystingu fjármuna og aðrar upplýsingar sem tengjast framkvæmd laga um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir og frystingu fjármuna skulu, eftir því sem við á, sendar til:

        - utanríkisráðuneytisins á netfangið postur@mfa.is
        - fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is

Loks minnir Fjármálaeftirlitið á að vanræksla á að uppfylla skyldur samkvæmt lögum um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir eða lögum um frystingu fjármuna geti varðað viðurlögum, m.a. í formi dagsekta eða stjórnvaldssekta.

Nánari skýringar er að finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands í leiðbeiningum fjármálaeftirlitsins og í fræðsluefni stýrihóps aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Einnig er að finna nánari upplýsingar á lista stjórnarráðsins og á þvingunaraðgerðakorti  Evrópusambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK