Hella neyðarbirgðum af olíu inn á markaði

Sól skein á olíudælur í Kaliforníu í febrúar síðastliðnum.
Sól skein á olíudælur í Kaliforníu í febrúar síðastliðnum. AFP

Bandaríkin og önnur stór lönd í orkunotkun hafa samþykkt að grípa til 60 milljóna tunna af olíu úr neyðarbirgðum sínum, til að koma til móts við ótta á mörkuðum um þverrandi framboð eftir að Rússland réðst inn í Úkraínu.

Alþjóðaorkumálastofnunin sagði í tilkynningu að þessi samræmda losun neyðarbirgða, sú fjórða í sögu stofnunarinnar, myndi senda sterk skilaboð til heimsmarkaða um að ekki muni koma til skorts á olíu vegna innrásarinnar.

Þessi skilaboð gerðu þó lítið til að róa markaðinn og hefur Brent-olíuverð náð rúmlega 108 bandaríkjadala virði á tunnu þegar þetta er skrifað, en verðið hefur ekki verið hærra í átta ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK