Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, telur ekki ólíklegt að útsöluverð á bensíni fari hér yfir 300 krónur lítrinn á næstunni, í kjölfar hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu.
Það er nú 287,90 krónur. Hann segir að jafnframt sé mögulegt að verðið verði hærra en það var á núvirði metárin 2012 og 2013.