Rúmir tuttugu milljarðar greiddir í arð

Landsbankinn við Austurstræti.
Landsbankinn við Austurstræti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var í dag, samþykkti að greiða 14.409 milljónir króna í arð til hluthafa. Arðgreiðslan samsvarar um 50% af hagnaði ársins 2021. Einnig var samþykkt sérstök arðgreiðsla að fjárhæð 6.141 milljón króna. Samtals greiðir bankinn því 20.550 milljónum króna í arð á árinu. Heildararðgreiðslur bankans frá 2013-2022 nema þar með 166,7 milljörðum króna.

Fram kemur í tilkynningu frá Landsbankanum að aðalfundur bankans hafi verið haldinn með rafrænum hætti og var sendur út frá fundarsal bankans í Austurstræti 11.

Á fundinum flutti Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, skýrslu bankaráðs fyrir árið 2021 og Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, fjallaði um rekstur, stefnu og starfsemi bankans. Ársreikningur fyrir liðið starfsár var samþykktur, sem og tillögur um starfskjarastefnu og um kjör bankaráðsmanna. Fundurinn kaus ríkisendurskoðanda sem endurskoðanda bankans en ríkisendurskoðandi hefur í samræmi við heimildir sínar til að útvista verkefnum tilnefnt endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers til að annast endurskoðun ársreikninga bankans fyrir árið 2022.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK