Í fyrsta skipti í tíu ár hefur áskrifendum af streymisveitunni Netflix fækkað. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs fækkuðu þeim um 200 þúsund manns.
Fækkunin kemur í kjölfar þess að streymisveitan hækkaði verð á þjónustunni á lykilmörkuðum, meðal annars í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Þá var lokað fyrir veituna í Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu.
BBC greinir frá því að Netflix vari við því að áskrifendum geti fækkað enn frekar.
Því muni fyrirtækið reyna að koma í veg fyrir að fólk deili aðgangi sínum með öðrum.
Búist er við því að tvær milljón manns hafi sagt upp áskrift sinni fyrir lok júlí.
Hlutabréf í fyrirtækinu lækkuðu um meira en 20% í kjölfar fréttanna.