Bjarni Benediktsson efnahags- og fjármálaráðherra kannast ekki við að hafa haft miklar efasemdir í ráðherranefnd gagnvart útfærslu sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Hann kveðst vera þeirrar skoðunar að í ráðherranefnd hafi farið fram umræða um kosti og galla sölunnar og finnst honum ekki lýsandi að talað sé um efasemdir.
Þetta kom fram í máli ráðherra á opnum fundi fjárlaganefndar Alþingis þar sem hann sat fyrir svörum um söluna á Íslandsbanka.
Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra sagði í gær á Alþingi að bæði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi deilt áhyggjum hennar af þeirri aðferð sem var notið við söluna á bankanum sem fór fram 22. mars síðastliðinn.
Í viðtali við Morgunblaðið 11. apríl sagði Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra að hún hefði ekki verið hlynnt þeirri aðferðafræði sem varð ofan á við söluna á bréfum í Íslandsbanka. Kvaðst hún vera mótfallin því að bréfin yrðu seld til valins hóps fjárfesta og að hún hafi komið þessum sjónarmiðum skýrt á framfæri í aðdraganda útboðsins.
„Hvers vegna var ekki tekið mark á réttmætum áhyggjum og forspá viðskiptaráðherra?“ spurði Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, sem beindi fyrirspurn til Lilju á þingi í gær.
„Háttvirtur þingmaður beinir spurningu til mín varðandi viðbrögð forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra varðandi þær áhyggjur eða þær efasemdir sem ég hafði um þessa aðferð. Ég get upplýst þingið um að þau höfðu líka þessar áhyggjur,“ sagði Lilja.
Á opnum fundi fjárlaganefndar í morgun spurði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar hverjar efasemdir ráðherra voru sem viðskiptaráðherra minntist á á þingi í gær.
„Ég kannast ekki við að hafa verið með miklar efasemdir í nefndinni og ég tel ekki að það sé lýsandi fyrir umræðu í ráðherranefnd að þar hafi ráðherrar verið með mikla efasemd um að framkvæma útboðið. Þvert á móti þá er ég þeirrar skoðunar um að þar hafi farið fram gagnleg umræða um kosti og galla þeirra valkosta sem við stóðum frammi fyrir,“ sagði Bjarni.
Þorbjörg ítrekaði þá að hún væri að vísa í orð viðskiptaráðherra sem kvaðst hafa verið með miklar efasemdir um útboðið sem allar hafi ræst.
„Þannig ég spyr, og hún nefnir það sérstaklega í gær...,“ segir Þorbjörg sem nær ekki að klára setninguna.
„Já ég get ekki mætt hingað til að svara fyrir annan ráðherra sko en allt í lagi,“ grípur Bjarni fram í.
„Nei ég er ekki að biðja þig um að svara fyrir annan ráðherra. Hún er að vísa til þinna efasemda og að öll ráðherranefndin hafi haft þessar efasemdir,“ segir Þorbjörg.
„Ég er búinn að svara þessu,“ segir Bjarni þá.
Þegar Þorbjörg spyr hvort Lilja hafi verið að fara með rangt mál í gær segir Bjarni að hann telji að hún hafi verið að viðra pólitískar áhyggjur en ekki lagalegar áhyggjur.
„Pólitískar áhyggjur af því hvernig menn geti viðhaldið góðum stuðningi meðal þjóðarinnar eftir því hvaða leið er farin. Og kannski er það það sem ráðherra er að vísa til að það hefur skapast mikið uppnám og moldviðri út af þessari framkvæmd, að það hafi ræst sem hún hafði áhyggjur af, að það væri erfiðara að viðhalda pólitískum stuðningi þegar að allur íslenskur almenningur ætti ekki aðild að framkvæmd útboðsins.“
Þorbjörg sagði þá áhugavert að það væri í grundvallaratriðum ólík lýsing meðal ráðherra hverjar umræðurnar voru á fundum ráðherranefndar, sem þrír ráðherrar sitja.
„Eða menn kjósa að túlka eins og þeim hentar best,“ sagði Bjarni þá.