Landsvirkjun hagnaðist um 14,7 milljarða kr. á fyrsta ársfjórðungi þessa árs samanborið við um fjóra milljarða kr. á sama tímabili í fyrra.
Þetta kemur fram í þriggja mánaða uppgjöri fyrirtækisins.
„Rekstur Landsvirkjunar gekk vel á fyrsta ársfjórðungi í afar krefjandi umhverfi sem einkenndist af mikilli eftirspurn eftir raforku, langvarandi dræmu innrennsli til lóna og tíðum óveðrum á rekstrarsvæðum fyrirtækisins. Afhending forgangsorku jókst um 2% til stóriðju og um 20% til heimila og smærri fyrirtækja. Á tímabilinu þurfti hins vegar að grípa til tímabundinna skerðinga á skerðanlegum raforkusamningum, en þeim hefur nú verið aflétt,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar í tilkynningu.
Helstu atriði árshlutareiknings
Hörður segir ennfremur, að hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem gefi að mati stjórnenda skýrasta mynd af afkomu félagsins, hækki um 64,5% frá fyrra ári og hafi verið 10,6 milljarðar og hafi áður ekki verið hærri. Aukinn hagnað megi einkum rekja til hækkunar á raforkuverði til stórnotenda. „Hagnaður tímabilsins eftir skatta var 14,7 ma.kr, 3,7 faldast frá fyrra ári, en um helming hagnaðarins má í þetta sinn rekja til óinnleystra fjármagnsliða.“
Þá kemur fram, að sjóðstreymið hafi verið afar sterkt á tímabilinu, eða 16,8 milljarðar og skilaði það sér að mestu, eða 14,1 milljarður, í lækkun á nettó skuldum.
„Meðalverð til stórnotenda án flutnings var hærra en það hefur áður verið í sögu Landsvirkjunar, eða 41 dollarar á megavattstund. Í kjölfar endursamninga á síðustu misserum er nú svo komið að flestir viðskiptavinir Landsvirkjunar borga verð sem er sambærilegt við það sem gengur og gerist í þeim löndum sem við berum okkur helst saman við. Þessi ánægjulega þróun er í samræmi við hlutverk okkar, að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir og skila arðinum til eigenda okkar, íslensku þjóðarinnar.
Rekstur aflstöðva gekk áfram vel á tímabilinu, þrátt fyrir áskoranir vegna óveðra í febrúar og erfiðleika í vatnsbúskapnum, en ársfjórðungurinn var einn sá erfiðasti í sögu fyrirtækisins í þeim efnum. Mikið mæddi á starfsfólki Landsvirkjunar við þessar krefjandi aðstæður og er því full ástæða til að þakka því fyrir vel unnin störf,“ segir Hörður.