Eggert segir upp hjá Festi

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi

Eggert Þór Kristófersson forstjóri Festi hf. hefur sagt starfi sínu lausu frá 1. ágúst, en gert hefur verið samkomulag um starfslok hans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Festi, en félagið rekur í dag N1, Krónuna, Elko, Bakkann og fasteignafélag Festi.

Í tilkynningunni segir að Festi standi nú á tímamótum eftir mikla uppbyggingu undanfarinna ára og að Eggert telji að nú sé æskilegt að leitað verði til nýs einstaklings til að leiða starfsemi þess. 

„Ég vil þakka Eggerti fyrir hans mikla og góða starf fyrir félagið síðastliðin ellefu ár, þ.a. sjö ár sem forstjóri. Hann hefur leitt það í gegnum mikið vaxtar- og samþættingartímabil og skilar því nú af sér traustu og vel í stakk búnu að takast á við hin gríðarstóru verkefni tengd m.a. orkuskiptum og vaxandi þátttöku í daglegu lífi hins mikla fjölda viðskiptavina þess. Ég óska Eggerti velfarnaðar við þau verkefni sem hann mun nú snúa sér að og þakka gott samstarf á liðnum árum,“ er haft eftir Guðjóni Reynissyni, stjórnarformanni félagsins.

Eggert hóf störf hjá Festi, þá undir nafninu N1, í júní árið 2011 sem fjármálastjóri eftir nauðasamninga sem gerðir höfðu verið í maí það ár. Haft er eftir Eggerti að skráning félagsins hafi í kjölfarið gengið vel. „Mikilvægt skref var síðan stigið þegar við keyptum gamla Festi þ.e. ELKO, Krónuna, Festi fasteignir og Bakkann vöruhótel árið 2018 og voru það stefnumótandi og mikilvæg kaup til að undirbúa félagið að orkuskiptum og þeim breytingum sem eru að verða í okkar samfélagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK