Ásta ráðin framkvæmdastjóri Special Tours

Ásta María Marinósdóttir.
Ásta María Marinósdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Hilmar Stefánsson, framkvæmdastjóri Special Tours hefur ákveðið að láta af störfum að eigin ósk. Ásta María Marinósdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Special Tours og hefur þegar hafið störf. Ásta María hefur starfað hjá Special Tours síðan 2013 og sem sölustjóri síðan 2015.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þá segir að Þóra Matthildur Þórðardóttir hafi verið ráðin sölu- og markaðsstjóri, en hún hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2018.

Þóra Matthildur Þórðardóttir.
Þóra Matthildur Þórðardóttir.

„Special Tours er þjónustu- og markaðsfyrirtæki í ferðaþjónustu sem leggur áherslu á siglingar í afþreyingarskyni allt árið um kring. Félagið gerir út frá gömlu höfninni í Reykjavík, sem er eitt vinsælasta svæði meðal ferðamanna í borginni, og býður meðal annars upp á hvalaskoðunarferðir, norðurljósaferðir á sjó, lundaskoðunarferðir og sjóstangaveiði. Í samstæðu Special Tours er auk þess hvalasýningin Whales of Iceland. Þá rekur félagið einnig kaffihúsið Reykjavík Röst við gömlu höfnina,“ segir í tilkynningu þar sem stjórn fyrirtækisins þakkar jafnfram Hilmari fyrir gott samstarf. 

Hilmar Stefánsson hefur leitt uppbyggingu Special Tours, Whales of Iceland …
Hilmar Stefánsson hefur leitt uppbyggingu Special Tours, Whales of Iceland og Reykjavík Röst undanfarin ár. Hann lætur nú af störfum að eigin ósk.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK