Gætu þurft að búa lengur í foreldrahúsum

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ásgeir Jóns­son seðlabanka­stjóri seg­ir að með því að lækka há­mark veðsetn­ing­ar­hlut­falls fast­eignalána fyr­ir fyrstu kaup­end­ur úr 90% í 85% sé mögu­lega verið að bjarga fólki frá því að koma inn á markaðinn á röng­um tíma.

Breyt­ing­arn­ar voru kynnt­ar í húsa­kynn­um Seðlabanka Íslands í morg­un. Með þeim þurfa fyrstu kaup­end­ur að geta lagt fram 15 pró­sent af kaup­verði fast­eign­ar í út­borg­un.

„Þetta eru alla­vega ákveðin skila­boð og fela kannski í sér að for­eldr­ar þurfi  vera með börn­in leng­ur heima eða eitt­hvað álíka. Við álít­um að með þessu séum við í raun­inni að reyna að vernda ungt fólk. Þó það hljómi kannski mögu­lega ekki þannig fyr­ir því,“ seg­ir Ásgeir um lækk­un­ina.

Hátt hlut­fall fyrstu kaup­enda gleðilegt

„Núna eru mjög stór­ar kyn­slóðir af ungu fólki að koma inn á fast­eigna­markaðinn,“ seg­ir Ásgeir og bend­ir einnig á mikla eft­ir­spurn eft­ir starfs­fólki og því hafi verið auðveld­ara að kom­ast inn á vinnu­markaðinn núna held­ur en hef­ur verið í lang­an tíma.

Af þeim sök­um sé það alls ekki óeðli­legt að allt þetta unga fólk vilji eign­ast hús­næði. Þá bæt­ir hann við að það sé mjög gleðilegt að hlut­fall fyrstu kaup­enda hafi eig­in­lega aldrei verið hærra en árin 2020-2021 eft­ir að vext­ir voru lækkaðir vegna kór­ónu­veiruf­ar­ald­urs­ins. 30-40% þeirra sem keyptu sér eign­ir voru þá fyrstu kaup­end­ur.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika gera grein …
Ásgeir Jóns­son seðlabanka­stjóri og Gunn­ar Jak­obs­son, vara­seðlabanka­stjóri fjár­mála­stöðug­leika gera grein fyr­ir yf­ir­lýs­ingu fjár­mála­stöðug­leika­nefnd­ar. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

„Það sem mér finnst líka gleðilegt er að þetta unga fólk kom inn án þess að taka verðtryggð lán. Þessi hús­næðis­kaup hafa í sjálfu sér verið mjög vel heppnuð að mörgu leyti,“ seg­ir Ásgeir og bæt­ir við:

„Þessi verðbólgu­skell­ur sem við höf­um séð núna hef­ur ekki lent á þess­um fyrstu kaup­end­um af full­um þunga, þar sem nafn­vext­ir hafa ekki fylgt verðbólgu og hækk­andi fast­eigna­verð hef­ur skapað nýtt eigið fé hjá þess­um hóp. Þannig að þegar við fór­um að herða regl­ur um veðsetn­ingu síðasta sum­ar, þar sem há­marks­veðsetn­ing var færð úr 85% í 80%, þá ákváðum við að und­an­skilja fyrstu kaup­end­ur, því við vild­um halda leiðinni op­inni fyr­ir ungt fólk inn á markaðinn. Núna höf­um við hins veg­ar áhyggj­ur af því, í ljósi mik­illa hækk­ana á fast­eigna­markaði að und­an­förnu, að það sé óheppi­legt að fólk komi inn á markaðinn með allt of mikla skuld­setn­ing­u.“

Hann seg­ist þó halda að vísu að eng­inn lán­tak­andi aug­lýsi 90% lán og að bank­an­ir séu ekki endi­lega ginn­keypt­ir fyr­ir slíku.

Leigu­verð geti hækkað

Aðspurður seg­ir Ásgeir að þess­ar aðgerðir gætu þýtt að færri fyrstu kaup­end­ur kom­ist inn á markaðinn og sömu­leiðis að leigu­verðið hækki.

Það verður þá erfiðara að kaupa og dýr­ara að leigja?

„Það er al­veg rétt en það má hins veg­ar spyrja á móti. Hvort er betra að borga hátt fyr­ir leigu í skamm­an tíma eða að kaupa eign á allt of háu verði?“

Þá bend­ir Ásgeir á að þegar vext­ir voru lækkaðir á sín­um tíma, hafi leigu­verðið lækkað. Það hafi ekki hækkað í takt við verðbólgu á síðustu 2-3 árum. „En það er al­veg viðbúið að ef við þrengj­um að aðgengi að láns­fé, sem við erum að gera núna, þá verður fólk að leigja. Af því vand­inn á hús­næðismarkaði er skort­ur á fram­boði.“

Hef­ur ekki verið byggt fyr­ir ungt fólk

Ásgeir seg­ir þetta að nokkru leyti vera skort á for­sjá í skipu­lags­mál­um. „Það hef­ur bara ekki verið byggt fyr­ir þess­ar stóru kyn­slóðir sem nú eru að koma inn á markaðinn. Við í Seðlabank­an­um get­um ekki leyst það mál,“ seg­ir hann.

Þá seg­ir Ásgeir að mögu­lega verði hægt að draga lækk­un á há­marki veðsetn­ing­ar­hlut­falls til baka ef vel tekst til að leysa úr skorti á hús­næði.

„Við höf­um al­veg nóg land til að byggja og skort­ur á fram­boði ætti því ekki vera vandi til framtíðar,“ seg­ir Ásgeir.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK