Lára Hannesdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður Vöru- og verkefnastýringar Creditinfo á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Creditinfo.
„Lára hóf störf hjá Creditinfo 2017, þá sem vöru- og verkefnastjóri. Áður starfaði hún hjá Símanum sem sérfræðingur í umbótaverkefnum (lean management) og sem fjárfestingastjóri hjá Thule Investments. Lára er iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistarapróf í iðnaðarverkfræði frá Háskólanum Politécnica de Catalunya,“ segir í tilkynningunni.