Heimkaup hóf í dag að dreifa bjór, léttvíni og öðru áfengi í heimsendingu, en með þessum hætti geta neytendur nú nálgast mikið úrval matar og víns alla daga vikunnar og fengið sent heim samdægurs.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heimkaupum.
Það er danska fyrirtækið Heimkaup ApS sem selur áfengið en Heimkaup (Wedo ehf) dreifir vörunni, ásamt þeim tugþúsunda vörunúmera sem í boði eru hjá Heimkaupum.
Fyrst um sinn verður hægt að versla og fá sent áfengi frá innlendum birgjum og má sjá vöruúrvalið á vef Heimkaupa.