Guðlaug Líney Jóhannsdóttir hefur óskað eftir að láta af störfum sem formaður Flugfreyjufélags Íslands og mun hefja störf sem deildarstjóri launadeildar Icelandair. Þetta staðfestir hún í samtali við mbl.is.
„Ég hlakka bara til að takast á við nýjar áskoranir,“ segir Guðlaug.
Áður hafði hún greint frá starfslokunum í færslu í lokuðum facebookhópi flugfreyja. Þar þakkaði hún fyrir gott starf og sagðist ganga stolt frá borði. „Þessi tími hefur verið annasamur og litríkur,“ segir í færslunni.
„Saman höfum við náð árangri í ýmsum málum og óska ég félaginu og ykkur öllum velfarnaðar í starfi.“
Guðlaug hefur verið formaður Flugfreyjufélagsins frá því í júní 2021 en var starfandi formaður í verkföllum flugfreyja árið 2020. Þau verkföll fylgdu í kjölfar fjöldauppsagna Icelandair.
Icelandair endurréði margar af þeim flugfreyjum sem sagt var upp en fór ekki eftir starfsaldri.
Tekist var á um þær endurráðningar í félagsdómi nú í vor með sigri Flugfreyjufélagsins.